Akstur vagna Strætó bs. á frídegi verkalýðsins, 1. maí, verður að venju samkvæmt sunnudagsáætlun.
Allar nánari upplýsingar má fáá www.straeto.is og í þjónustusíma Strætó bs.,540 2700.
30. apríl 2012
Ljósmyndasýning nemenda í Laugalandsskóla
Laugalandsskóli í Holtum hefur undanfarin ár verið í samstarfi við menntayfirvöld í Norður Dakóta sem tengjast listamanna heimsóknum í skóla. Annaðhvert ár heimsækir listamaður frá Bandaríkjunum Laugalandsskóla og þess á milli fer íslenskur listamaður til Norður Dakota í Bandaríkjunum. Myndir og myndband neðar í fréttinni.
28. apríl 2012
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga haldinn á Hellu
Árlegur samráðsfundur Skipulagsstofnunar, Sambands íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélaganna er nú haldinn dagana 26. og 27. apríl í Safnaðarheimilinu á Hellu. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á meðan hann er í gangi.
26. apríl 2012
Ályktun Þjórsársveita um tillögu verkefnisstjórnar um rammaáætlun
Eftirfarandi ályktun ásamt greinargerð er sett saman í framhaldi af fundi framkvæmdanefndar Þjórsársveita sem haldinn var í Þingborg 12. apríl 2012. Ályktunin er send ráðherrum iðnaðar- og umhverfismála, nefndasviði Alþingis, þingmönnum Suðurkjördæmis og fjölmiðlum.
25. apríl 2012
Menningarráð Suðurlands auglýsir stofn- og rekstrarstyrki
Tilgangur styrkjanna er að stuðla að því að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkveitingarnar miðast við árið 2012. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 13. maí 2012. Umsóknareyðublað og úthlutunarreglur er að finna á heimasíðu Menningarráðs Suðurlands www.sunnanmenning.is.
25. apríl 2012
Frjálsíþróttamót Umf Heklu föstudaginn 27. apríl
Á föstudaginn 27. apríl (næsta föstudag) milli klukkan 15.00 og 16.30 ætlar Umf. Hekla að standa fyrir smá frjálsíþróttamóti í íþróttahúsinu á Hellu. Mótið verður fyrir krakka í 1.-4. bekk. Keppt verður í 30m hlaupi, langstökki og pílukasti. Öllum krökkum í sýslunni er boðin þátttaka.
23. apríl 2012
Fréttabréf félags eldri borgara er komið út
Fréttabréf félags eldri borgara frá 12. apríl til semtember 2012 er komið út. Farið er vítt og breitt yfir starfsemi félagsins í ár og er þarf af nægu að taka. Gaman er að sjá hvað félagsstarfið er öflugt hjá eldri borgurum. Félagsstarf eldri borgara hefur sinn stað á síðunni undir málaflokknum "íþrótta- og tómstundamál".
22. apríl 2012
Aðalfundur Umf. Heklu og áburðarsala
Miðvikudagskvöldið 25.apríl. næstkomandi Kl:20.00 verður aðalfundur Umf. Heklu haldinn í Grunnskólanum á Hellu. Einnig mun Umf. Hekla standa fyrir sölu á áburði um mánaðarmótin apríl/maí eins og síðustu ár. Seldur verður áburður í 12 kg fötum og reynt verður að hafa svipað verð og í fyrra en það verður auglýst síðar.
18. apríl 2012
Úrsögn úr embætti Skipulags-og byggingarfulltrúa Rangárþings bs.
Á stjórnarfundi í embætti Skipulags-og byggingarfulltrúa Rangárþings bs., 2. apríl sl., var lögð fram tillaga þess efnis að Rangárþing ytra segði sig úr byggðasamlaginu. Í framhaldinu var óskað var eftir viðræðum samstarfssveitarfélaganna til að vinna að lausn málsins. Bæði meiri- og minnihluti sveitarstjórnar Rangárþings ytra styður ákvörðunina.
17. apríl 2012
Styrktartónleikar fyrir Menningarsalinn á Hellu
Þau félög sem þar starfa og hafa aðstöðu í Menningarsalnum á Hellu munu á sumardaginn fyrsta kl.14:00 halda styrktartónleika fyrir salinn. Þar koma fram Samkór Rangæinga, Leikfélag Rangæinga, Harmonikufélag Rangæinga, Kvennakórinn Ljósbrá, Kirkjukór Odda- og Þykkvabæjarkirkna, Karlakór Rangæinga og Karlakórinn Þrestir.