Verslunarmannahelgin 2013 - Edrúthátið SÁÁ að Laugalandi í Holtum

Verslunarmannahelgin 2013 - Edrúthátið SÁÁ að Laugalandi í Holtum

Edrúhátíðin hefur verið haldin í 25 ár og er frábær hátíð fyrir fjölskyldu- og barnafólk. Þarna getur fólk skemmt sér áhyggjulaust með krakkana sína. Í ár verður frábær dagskrá fyrir alla, unga sem aldna. Aðgangseyrir er 6.000 kr fyrir alla helgina. Dagpassar eru á 2.500 kr. Ókeypis er fyrir 14 ára og yngri. Öll vímuefni eru bönnuð.
readMoreNews
Rangárþing ytra og Umf. Hekla skrifa undir þjónustusamning

Rangárþing ytra og Umf. Hekla skrifa undir þjónustusamning

Fimmtudaginn 18. júlí skrifuðu fulltrúar sveitarfélagsins og Umf. Heklu, þau Drífa Hjartardóttir og Guðmundur Jónasson, undir þjónustusamning vegna útbreiðslu íþrótta- og tómstunda í skólastarfi og Rangárþingi ytra. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2013 og er til fimm ára. Þjónustusamningurinn felur í sér árlega greiðslu frá Rangárþingi ytra til Umf. Heklu fyrir ákveðin skilgreind verkefni.
readMoreNews
Suðurhálendið - Rammaskipulag fyrir Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Skaftárhrepp

Suðurhálendið - Rammaskipulag fyrir Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Skaftárhrepp

Rammaskipulag fyrir Suðurhálendið norðan Mýrdalsjökuls er samræmd stefnumörkun í skipulags- og byggingarmálum á svæðinu, sem tekur einkum til ferðaþjónustu og samgangna. Stefnumörkunin tekur til stærsta hluta hálendissvæða Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Skaftárhrepps.
readMoreNews
Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér kynntar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum. Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt lýsing að eftirfarandi breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010/2022.
readMoreNews
Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona með vel heppnað knattspyrnunámskeið á Hellu

Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona með vel heppnað knattspyrnunámskeið á Hellu

Dagana 30. júní – 5. júlí hélt Dagný Brynjarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu knattspyrnunámskeið á Hellu. Kennt var í tveimur hópum, krakkar fæddir 2002 - 2003 og 2004 - 2005. Námskeiðið heppnaðist vel og það voru ánægðir og stoltir krakkar sem stilltu sér upp á mynd með Dagný á góðri stund eftir námskeiðið.
readMoreNews
Frjálsíþróttaæfingar á íþróttavellinum á Hellu

Frjálsíþróttaæfingar á íþróttavellinum á Hellu

Ungmennafélagið Hekla verður með frjálsíþróttaæfingar á íþróttavellinum á Hellu í sumar sem hefjast nú að loknu landsmóti. Æfingarnar verða á mánudögum kl: 14.00 - 15.15. Æfingar eru öllum opnar, hvort sem þeir eru í Heklu eða öðrum félögum.
readMoreNews
Frábært framtak hjá flottum stelpum

Frábært framtak hjá flottum stelpum

Þær Bára Ósk og Þórný Björg voru úti að leika sér og langaði að halda tombólu til styrktar leikskólanum Heklukoti. Þær söfnuðu allskonar dóti og seldu svo fyrir utan búðina. Þær fengu hvorki meira né minna en 5.459 krónur og keyptu dót fyrir peninginn og gáfu börnunum í leikskólanum sem voru mjög glöð og sungu fyrir þær í þakklætisskyni.
readMoreNews
50. fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra, á kjörtímabilinu 2010 - 2014

50. fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra, á kjörtímabilinu 2010 - 2014

50. fundur hreppsnefndar Rangárþings ytra, á kjörtímabilinu 2010 - 2014, verður haldinn að Suðurlandsvegi 3 á Hellu, föstudaginn 5. júlí 2013, kl. 13.00. FUNDARBOÐ OG DAGSKRÁ...
readMoreNews
Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra 2013

Umhverfisverðlaun Rangárþings ytra 2013

Samgöngu-, hálendis- og umhverfisnefnd Rangárþings ytra auglýsir eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna , sem áætlað er að veita í sumar. Íbúar eru hvattir til að senda inn ábendingar til nefndarinnar eða á skrifstofu Rangárþings ytra Suðurlandsvegi 1  fyrir 15. júlí n.k. merkt Umhverfisverðlaun 2013.
readMoreNews
Vatnsleikfiminámskeið að Laugalandi í Holtum

Vatnsleikfiminámskeið að Laugalandi í Holtum

Á vormánuðum var haldið vatnsleikfimisnámskeið að Laugalandi í Holtum. Námskeiðið var í höndum Maríu Carmenar en hún hefur undanfarið boðið upp á slík námskeið tvisvar á ári. Þó tíðarfarið hafi ekki alltaf verið sem best þessa vordaga, létu konurnar engan bilbug á sér finna og nutu þeirrar heilsubótar sem vatnsleikfimin býður upp á sem og slökunar sem vatnið veitir.
readMoreNews