Framkvæmdir hafnar í Kjarröldu
Framkvæmdir hafnar í Kjarröldu

Á fundi byggðarráðs Rangárþings ytra í gær var úthlutað 17 lóðum, 15 íbúðalóðum fyrir 33 íbúðaeiningar og 2 atvinnulóðum á Hellu. Að þessu sinni þurfti í mörgum tilfellum að draga um lóðir þar sem allt að 14 umsóknir voru um sumar lóðirnar. Lóðirnar sem úthlutað var í morgun standa við Kjarröldu, Bogatún, Guðrúnartún, Sporðöldu, Sandöldu, Langöldu, Dynskála og Faxaflatir. Það hefur verið kraftur í húsbyggingum á Hellu undanfarin misseri og ekki dregur úr þvi á næstunni miðað við þessi tíðindi.

Byggðaráð dregur um lóðir

Dregið um lóðir í Byggðaráði.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?