Laugavegurinn í friðlandi að Fjallabaki / Umhverfisstofnun
Laugavegurinn í friðlandi að Fjallabaki / Umhverfisstofnun

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði nýverið grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára.

Umhverfisstofnun hefur umsjón með friðlandinu að Fjallabaki og fékk styrk í til sex verkefna. Verkefnin eru ýmisskonar en m.a. til merkinga, göngustígagerðar, hönnunar áningarstaða, hönnunar og smíði göngubrúr yfir Námskvísl og uppbygging göngustíga við Laugahring og Rauðufossa. Einnig fékk Umhverfisráðuneytið fékk úthlutað styrk til þróunarverkefnis um gönguleiðir með Laugaveginn sem áherslustað. Alls var úthlutað 177.583.000 kr sem dreifist árin 2022 og 2023. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um verkefnin hér.  

Í ár verður alls úthlutað rúmlega 914 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða sem gerir kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp efnislega innviði á ferðamannastöðum, s.s. göngustíga, útsýnispalla, bílastæði og salerni. Aukin áhersla er á langtímaáætlanir í uppbyggingu staða en einnig á aukna miðlun og merkingar, ekki síst á stöðum þar sem samspil er á milli náttúru og menningarsögulegra minja.

65 nýir staðir

Landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum er stefnumarkandi áætlun sem Alþingi samþykkti 2018. Verkefnaáætlanir eru gerðar til þriggja ára og eru uppfærðar á hverju ári. Ný verkefnaáætlun sem ráðherra kynnti í dag nær til áranna 2022-2024.

Alls eru nú 151 verkefni á áætlun næstu þriggja ára á rúmlega 90 ferðamannastöðum, þar af 65 ný verkefni sem bætast við að þessu sinni. Þar má nefna uppbyggingu á Geysissvæðinu, byggingu útsýnispalls og göngustíga í Ásbyrgi, yfirbyggingu minja þjóðveldisbæjarins á Stöng í Þjórsárdal, skála með góðri heilsárs salernisaðstöðu í Vaglaskógi, vandaða göngustíga við Búrfellsgjá, áframhaldandi umbætur á aðgengi ofan við Gullfoss með steyptum stígum og frekari skref til bættrar aðstöðu við Jökulsárlón.

Mikill árangur náðst í að bæta innviði

„Landsáætlun um uppbyggingu innviða er verkfæri sem hefur sannað sig til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum um allt land,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. „Það er mikilvægt er að hlúa vel að náttúru og minjastöðum okkar, sem svo margir njóta að heimsækja. Áætlunin gefur fyrirsjáanleika og fjármagn til lengri tíma, en einnig svigrúm til að bregðast hratt og örugglega við óvæntu álagi vegna ferðamanna, eins og við höfum gert. Nú þegar við gefum verkefnaáætlunina út í fimmta sinn höldum við áfram vandaðri innviðauppbyggingu, sem ég veit að mun vernda viðkvæma náttúru og styðja við góða upplifun fólks á ferð sinni um landið.“

Mikill árangur hefur náðst í að bæta innviði um land allt og auka getu svæða til að taka á móti ferðamönnum, en á síðasta ári voru veittar 764 milljónir til slíkra verkefna, m.a. var aðstaða fyrir ferðamenn, ekki síst börn, stórbætt við Malarrif á Snæfellsnesi en einnig búið svo um hnútana að hægt væri að ráðast strax í nauðsynlegar endurbætur á innviðum í Hornstrandafriðlandinu sem nýtur stóraukinna vinsælda hjá innlendum og erlendum ferðamönnum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?