Framkvæmdir standa nú yfir við um 4.000 fermetra nýbyggingu Reykjagarðs á Hellu. Um er að ræða umfangsmikla fjárfestingu sem áætlað er að geti numið allt að 2,8 milljörðum króna og mun uppbyggingin meðal annars leiða til þess að starfsemi sem nú fer fram á höfuðborgarsvæðinu flyst á Hellu.
Nýbyggingin rís austan við núverandi húsnæði Reykjagarðs og verður tengd því með sérstakri tengibyggingu. Þar verður meðal annars komið fyrir hlutun, úrbeiningu, fullvinnslu, pökkun, frystingu, kælum og afgreiðslu auk úrgangs- og tæknirýma. Samhliða framkvæmdunum verður stór hluti vélbúnaðar endurnýjaður.
Til stendur að flytja starfsemi sem nú er rekin með um 25 stöðugildum á höfuðborgarsvæðinu yfir í nýja húsnæðið á Hellu. Þá verður sett upp ný vinnslulína til steikingar og frystingar en sú vinnsla fer í dag fram hjá SS á Hvolsvelli.

Fyrsti áfangi kominn vel á veg
Út- og innveggir fyrsta áfanga hafa þegar verið reistir. Stærstur hluti þess húsnæðis mun hýsa starfsemi sem flyst úr Garðabæ.
Samkvæmt tímaáætlun er gert ráð fyrir að húsinu verði lokað í byrjun nóvember. Í kjölfarið tekur við innanhússfrágangur og uppsetning vélbúnaðar sem hefjast mun fljótlega eftir áramót. Stefnt er að því að starfsemi í nýju vinnslunni hefjist um mitt ár 2027.
Þjótandi ehf. annast jarðvinnu við framkvæmdina og BM Vallá framleiðir og reisir steyptar einingar ásamt þakvirki frá Límtré Vírneti á Flúðum. Gert er ráð fyrir að aðilar af svæðinu annist og hafi umsjón með pípu- og raflögnum.
Aðalhönnuður hússins er Vigfús Halldórsson hjá Balsa ehf., byggingarstjóri er Þórður Smári Sverrisson hjá Verkmið ehf. og verkefnisstjórn af hálfu Reykjagarðs er í höndum Björns Stefánssonar hjá Gaddstöðum ehf.
Vinnslu- og vélbúnaður kemur meðal annars frá MAREL, GEA, Foodmate og ATT og verður búnaðurinn í samræmi við nýjustu tækni í kjúklingavinnslu á heimsvísu.

Um 100–110 störf í Rangárvallasýslu
Í heild starfa um 140 manns hjá Reykjagarði við eldi, ræktun, slátrun, úrvinnslu og sölu kjúklinga. Þar af eru um 100–110 störf í Rangárvallasýslu.
Guðmundur Svavarsson framkvæmdastjóri segir uppbygginguna marka stórt skref í starfsemi Reykjagarðs og atvinnuuppbyggingu á svæðinu en fjárfestingin er með þeim umfangsmeiri sem einkafyrirtæki hefur ráðist í á síðustu áratugum í Rangárvallasýslu.
„Ekki verður hjá því komist að einhver verði röskun á starfsumhverfi okkar hér á Hellu á meðan á framkvæmdum stendur og biðjumst við velvirðingar á því. Enn er ástæða til að þakka íbúum og sveitarstjórnaryfirvöldum í Rangárþingi Ytra velvild og samvinnu við að koma þessu öllu í kring. Slíkt er forsenda þess að unnt sé að ráðast í atvinnuuppbyggingu af þessari stærðargráðu og mikils metið,‟ segir Guðmundur að lokum.
