09. mars 2026
Aðalfundur Ferðafélags Rangæinga verður haldinn í safnaðarheimilinu á Hellu mánudaginn 9. mars og hefst hann kl 18:00.
Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa mun ferðanefnd FFRang kynna ferðaáætlun ársins 2026.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta og gestir velkomnir.