Aðventuhátíð á Laugalandi

Aðventuhátíðin sem haldin er fyrstu helgi í aðventu á Laugalandi er orðin fastur liður í undirbúningi jólanna hjá mörgum. Öllu jafna eru flutt tónlistaratriði á hátíðinni en í ár var í fyrsta sinn tónlistaratriði frá yngstu nemendum Laugalandsskóla. Þessi flutningur tókst í alla staði vel.  Börnin stigu brosandi upp á svið og fluttu nokkur lög bæði með undirleik og án. Í vetur hafa börnin æft söng saman í kór einu sinni í viku undir stjórn kennara skólans þeirra Kristínar Sigfúsdóttur og Thelmu Marínósdóttur. Sá undirbúningur hefur greinilega skilað sínu, því á svið stigu örugg og brosandi börn.

Þá flutti tónlistarval skólans einnig nokkur lög en það er skipað nemendum af elsta stigi skólans. Stefán Erlingsson sér um kennslu og leiðsögn þeirra í ár en í fjarveru hans lék Kristín Sigfúsdóttir undir á hátíðinni. Óhætt er að segja að allir þeir nemendur skólans sem stigu á svið hafi staðið sig með miklum sóma. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?