24. nóvember 2026
Hin árlega aðventuhátíð Kvenfélagsins Einingar í Holtum verður haldin sunnudaginn 29. nóvember á Laugalandi í Holtum frá kl. 13:00–16:00.
Á hátíðinni gefst gestum kostur á að versla jólagjafir og jólagóðgæti beint af handverksfólki. Meðal þess sem verður í boði eru flatkökur, rúgbrauð, ullarvörur, tertur, skartgripir, nýútkomnar bækur, grafnar andabringur og litháískar hátíðarkökur.
Skógræktarfélag Rangæinga verður á staðnum með hin sívinsælu borð- og tröpputré auk jólatrjáa.
Kvenfélagið stendur fyrir glæsilegri hlutaveltu og kaffisölu en einnig verður boðið upp á lifandi tónlistarflutning, upplestur og heimsókn jólasveina.
Öll hjartanlega velkomin að njóta notalegrar aðventustundar á Laugalandi.