Aðventutónleikar í Menningarsal Oddasóknar

Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 20:00 verða haldnir hátíðlegir aðventutónleikar í Menningarsal Oddasóknar að Dynskálum 8 á Hellu.

Fjölbreytt tónlistardagskrá verður í boði en fram koma Karlakór Rangæinga, Harmonikkusveit Suðurlands, Kvennakórinn Ljósbrá og Kór Odda- og Þykkvabæjarkirkju. Einnig verða tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Rangæinga.

Kvenfélagið Unnur sér um kaffiveitingar í hléi.

Aðgangseyrir er 4.000 kr. en frítt er fyrir börn yngri en 16 ára.

Allur ágóði tónleikanna verður nýttur til þess að bæta aðstöðu í Menningarsal Oddasóknar.