Æfingar NATO á Helluflugvelli

NATO stendur fyrir æfingum á Hellu flugvelli 23. – 29. ágúst n.k. þar sem m.a. C-130 Juliet vél bandaríska flotans flutningavél verður lent á flugvellinum allt að 10x á dag ásamt því að fallhlífastökkvarar munu æfa. Æfingarnar eru hluti af verkefni sem kallast Norður-Víkingur.

Brunavarnir Rangárvallasýslu verða með viðbúnað við flugvöllinn.

Viðbúið er að íbúar verði varir við þessa umferð en aðeins er um æfingu að ræða.