Afleysing – Leikskólinn Heklukot

Leikskólinn Heklukot á Hellu leitar að starfsmanni tímabundið til að sinna afleysingum við leikskólann.

Tímabilið er frá apríl til júlí 2023.

Vinnutíminn er frá kl. 8:00-16:00.

Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að starfa með börnum, sýna ábyrgð í starfi, vera stundvís og sveigjanleg/ur. Góð íslenskukunnátta er frumskilyrði.

Áhugasamir sendi póst á inga@heklukot.is eða hafi samband í s: 4887045.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?