Myndin sýnir nýtt hverfi, lóðirnar sem um ræðir eru aðgreindar með grænum lit.
Myndin sýnir nýtt hverfi, lóðirnar sem um ræðir eru aðgreindar með grænum lit.

Rangárþing ytra hefur ákveðið að veita tímabundið afslátt af ákveðnum iðnaðar- og athafnalóðum í nýju hverfi á Hellu. Er þetta gert til þess að hvetja til uppbyggingar í nýju iðnaðar- og athafnahverfi sunnan Suðurlandsvegar á Hellu.

Um er að ræða tvær lóðir á iðnaðarsvæði (Sleipnisflatir 6 og 8) og tvær á athafnasvæði (Sleipnisflatir 5 og 7) í nýju iðnaðar- og athafnahverfi sunnan suðurlandsvegar á Hellu. Átakið felur í sér að boðið verður uppá áfangaskiptingu gatnagerðargjalda. Áfangaskiptingin er í samræmi við 5.gr. samþykktar um byggingargjöld. ...“Verði heimiluð áfangaskipti falla áætluð gjöld í gjalddaga við upphaf hvers byggingaráfanga í samræmi við áform lóðarhafa við úthlutun lóðarinnar“.

Iðnaðarlóðirnar eru 4650m2 og 4740m2 og má bygging vera á 1-2 hæðum. Athafnalóðirnar eru 3076m2 og 3968m2 og má bygging vera á 1-2 hæðum.

Hvað er iðnaðarsvæði?

Svæði fyrir umfangsmikla iðnaðarstarfsemi eða starfsemi sem er talin geta haft mengun í för með sér, svo sem verksmiðjur, virkjanir, þ.m.t. vatnsfallsvirkjanir, jarðhitavirkjanir, sjávarfallavirkjanir og vindmyllur, tengivirki, veitustöðvar, skólpdælu- og hreinsistöðvar, endurvinnslustöðvar, brennslustöðvar, förgunarstöðvar, sorpurðunarsvæði, flokkunarmiðstöðvar og birgðastöðvar fyrir mengandi efni.

Hvað er athafnasvæði?

Svæði fyrir atvinnustarfsemi þar sem lítil hætta er á mengun svo sem léttur iðnaður, hreinleg verkstæði, bílasölur og umboðs- og heildverslanir. Einnig atvinnustarfsemi sem þarfnast mikils rýmis, t.d. vinnusvæði utandyra á lóðum eða starfsemi sem hefur í för með sér þungaflutninga, svo sem vörugeymslur og matvælaiðnaður.

Gatnagerð á svæðinu er nánast lokið og því gætu framkvæmdir hafist í framhaldi af útlutun.

Við lóðaúthlutun gildir fyrstur kemur fyrstur fær og eru umsóknir teknar fyrir á fundi byggðarráðs í hverjum mánuði. Sjá nánar úthlutunarreglur á www.ry.is/uthlutunarreglur

Átaksverkefnið gildir þar til þessum fjórum lóðum hefur verið úthlutað eða lengst til og með 24. ágúst 2023.

Umsóknir fara fram í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins á umsóknarsíðu www.ry.is/umsoknumlod eða í gegnum viðkomandi lóð á kortasjá sveitarfélagsins, www.map.is/ry en þar má sjá nauðsynlegar upplýsingar um allar lausar lóðir á Hellu.

Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Sveitarstjóra eða Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytraí síma 488-7000 eða með tölvupósti jon@ry.is eða birgir@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?