Akstur vegna skólamáltíða - Leikskólinn Heklukot

Leikskólinn Heklukot á Hellu auglýsir eftir aðila til að flytja matarkassa úr skólamötuneyti í leikskólann.

Viðkomandi þarf að hafa bíl til umráða. Maturinn er sóttur í skólamötuneyti sem er staðsett í íþróttahúsinu á Hellu við Útskála 4 og fluttur í húsnæði leikskólans á þrjá staði, Útskála 1 og 2 og Þrúðvang 18.

Verkefnið tekur að jafnaði um ½ klst á dag á bilinu 10:45 til 11:15. Unnið er alla virka daga þegar leikskólinn er opinn.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Inga Stefánsdóttir

Netfang: inga@heklukot.is Sími: 488 7045

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?