Álagningarseðlar fasteignagjalda eru aðgengilegir á island.is

Álagningaseðlar fasteignagjalda eru ekki lengur sendir út með bréfi heldur eru þeir einungis aðgengilegir í gegnum www.island.is.

Allt fyrir umhverfið!

Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)

  1. Ferð inná www.island.is
  2. Skráir þig inn á "mínar síður"
  3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"
  4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2021" sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings ytra.

Sími 4887000 – netfang ry@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?