Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir

Álagningarseðlar fasteignagjalda hafa verið birtir rafrænt á Island.is.

Líkt og undanfarin ár munu álagningarseðlar ekki berast á pappír en eru þess í stað aðgengilegir rafrænt. Allt fyrir umhverfið!

Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar og munu kröfur birtast rafrænt í heimabanka. Hægt er að nálgast greiðsluseðla rafrænt á Ísland.is

Hvernig nálgast ég álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)

1. Ferð inná www.island.is

2. Skráir þig inn á "mínar síður"

3. Smellir á "Pósthólf"

4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2023" sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður á pdf formi eða prenta hann út.

Ef einhver vandamál koma upp er hægt að leita til skrifstofu Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með því að senda tölvupóst á netfangið ry@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?