Allt sem flýgur um helgina

Flughátíðin Allt sem flýgur stendur nú yfir á flugvellinum á Hellu og nær hátíðin hámarki um helgina. Hátíðin hefur vaxið ár frá ári og er orðin ómissandi hluti sumarsins hjá fjölmörgum flugáhugamönnum og fjölskyldum.

Á hátíðinni gefst gestum einstakt tækifæri til að kynnast fluginu í návígi. Flugvélar af ýmsum stærðum og gerðum verða á ferðinni, gestir geta skoðað vélarnar, komið sér fyrir við flugbrautina og fylgst með fjölbreyttum loftförum leika listir sínar.

Íslandsmót í flugi fer fram dagana fyrir helgina ásamt frjálsu flugi og kvöldkaffi í boði aðildarfélaga Flugmálafélags Íslands.

Á laugardaginn verður samfelld flugveisla frá klukkan 12:00 til 18:00. Karamellukastið vinsæla verður klukkan 14:00 og má búast við mikilli gleði þegar sælgæti rignir yfir svæðið. Um kvöldið verður sameiginleg grillveisla og að henni lokinni ekta íslensk kvöldvaka í flugskýlinu þar sem hljómsveit heldur uppi fjörinu.

Á svæðinu verður einnig boðið upp á fjölbreytta flugtengda afþreyingu, meðal annars flugdreka, flugvélar til skoðunar og litla flugturninn.

Hátíðin stendur yfir dagana 10.–12. júlí og er aðgangur ókeypis. Öll eru hjartanlega velkomin á flugvöllinn á Hellu til að njóta flugsumarsins eins og það gerist best.

Mikilvægar upplýsingar til flugmanna

Flugmenn sem koma fljúgandi á hátíðina eru hvattir til að kynna sér vel það NOTAM sem gefið hefur verið út og gildir meðan á hátíðinni stendur.

Braut 04/22 er aðalbraut flugvallarins og þverbrautin er lokuð nema í neyð. Umferðarhringur er austan við flugvöllinn og tíðnin er 118,4 MHz. Flugmenn eru beðnir um að kalla sig inn í um fimm sjómílna fjarlægð frá flugvellinum. Flugvöllurinn er óstjórnaður og því mikilvægt að flugmenn hafi góð samskipti sín á milli.

Flugmenn á leið til Hellu eru beðnir um að halda sig undir 1.500 fetum en þeir sem eru að fljúga frá Hellu eða eiga leið fram hjá svæðinu eru beðnir um að halda sig í 1.500 fetum eða ofar.

Jafnframt eru flugmenn hvattir til að sýna íbúum á Hellu og á nærliggjandi bæjum tillitssemi og lágmarka lágflug yfir byggð. Lágflug yfir tjaldsvæði er með öllu bannað.

Nánari upplýsingar, dagskrá og kort af svæðinu má finna á vef hátíðarinnar, alltsemflygur.is.