03. mars 2026
Læsi á stöðu og baráttu kvenna er samstarfsverkefni almenningsbókasafna á Íslandi í tilefni af Kvennaári 2025, til að vekja athygli á þróun kvenréttinda.
Héraðsbókasafn Rangæinga er þátttakandi í þessu verkefni.
Nú er boðað til bókmenntagöngu. Mæting er við Stórólfshvolskirkju kl. 14:00 þann 8. mars.
Gengið verður um Hvolsvöll, stoppað á ákveðnum stöðum þar sem lesin verður valinn texti úr bókum eftir íslenskar konur. Lesarar eru meðlimir Bókaklúbbnum Skruddur.
Gangan endar á bókasafninu á Hvolsvelli þar sem boðið verður upp á kaffi, safa og köku.
Einnig verður þar sýning á bókum eftir íslenskar konur.
Verkefnið er styrkt af Bókasafnssjóði.
Héraðsbókasafn Rangæinga