Árbakkinn sólstöðuhátíð haldin í annað sinn

Tónleikarnir Árbakkinn sólstöðuhátíð fóru fram á fjölskyldu- og útivistarsvæðinu í Nesi á Hellu þann 17. júní við góðar undirtektir gesta. Hátíðin var nú haldin í annað sinn og hefur þegar skapað sér sess sem skemmtilegur viðburður í menningarlífi sveitarfélagsins.

Árbakkinn er tónlistarhátíð sem sett var á laggirnar til að fagna sumarsólstöðum. Í ár var ákveðið að færa hátíðina fram á þjóðhátíðardaginn 17. júní og sameina þannig hátíðahöld vegna lýðveldisdagsins og sumarsólstaða í einum viðburði.

Fram komu tónlistarmenn búsettir í Rangárvallasýslu sem fluttu fjölbreytta dagskrá þar sem þekkt lög og frumsamið efni fóru saman. Meðal þeirra sem stigu á svið voru Hófí Samúels og Rakel Páls, Vigdís Lilja, Svala Norðdahl, Bjarki Eiríksson, Valborg Ólafs, Björn Leó og Kristinn Ingi.

Tónleikarnir fóru fram á sama stað og í fyrra, á útivistar- og fjölskyldusvæðinu í Nesi við ærslabelginn og aparóluna. Aðgangur var ókeypis og nýttu fjölmargar fjölskyldur tækifærið til að njóta tónlistar, samveru og íslensks sumars í fallegu umhverfi.

Bjarki Eiríksson hafði veg og vanda af skipulagningu hátíðarinnar og tókst vel til. Viðburðurinn gekk afar vel og skapaði góða stemningu meðal gesta á þessum hátíðisdegi.

Rangárþing ytra þakkar Bjarka og öllu því tónlistarfólki sem kom fram fyrir framlag sitt til hátíðarinnar, sem og öllum þeim sem lögðu leið sína í Nes og tóku þátt í að gera daginn eftirminnilegan.

Hér er hægt að skoða myndir Hjartar Levís Péturssonar frá Árbakkanum.