Árleg ræðu- og söngkeppni skólanna í Rangárþingi

Árleg ræðu- og söngkeppni skólanna í Rangárþingi þ.e. Grunnskólans á Hellu, Laugalandsskóla og Hvolsskóla fór fram á Hellu fimmtudagskvöldið 7. febrúar. Að þessu sinni var spurningakeppni bætt við dagskrána. Í ræðukeppninni þar sem umræðuefnið var Fésbókin sigruðu Lauglendingar með glæsilegum ræðuflutningi Önnu Guðrúnar Þórðardóttur. Í spurningakeppninni og söngkeppninni sigraði Grunnskólinn Hellu. Það var mál manna að allir keppendur skólanna hefðu staðið sig með sóma og störf dómara hafi ekki verið öfundsverð.

Sjá fleiri myndir og nánari umfjöllun á vef Grunnskólans á Hellu

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?