Ársreikningur 2015 staðfestur í sveitarstjórn
Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2015 var tekinn til seinni umræðu í sveitarstjórn Rangárþings ytra 11. maí 2016 og samþykktur samhljóða. Rekstrarniðurstaða var jákvæð um 100.448.000 kr. sem er allnokkru betra en áætlanir gerðu ráð fyrir.
 
Ársreikningurinn hefur að geyma ársteikninga fyrir þær rekstrareingingar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyritækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni bs. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf.

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu kr. 1.431.066 þúsund. Rekstrarniðurstaða var jákvæð um kr. 100.448 þúsund. Eigið fé í árslok 2015 var kr. 1.170.726 þúsund.

Sveitarstjórn samþykkti ársreikninginn samhljóða og beindi þökkum til starfsfólks sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?