Ársreikningur 2018 staðfestur í sveitarstjórn

Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2018 var staðfestur af byggðaráði fimmtudaginn 11. apríl 2019 og lagður fyrir sveitarstjórn. Hann var tekinn til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar sama dag og var vísað til seinni umræðu sem fram fór 9. maí 2019. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikning sveitarfélags á tveimur fundum í sveitarstjórn. Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikninga fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess það er A og B hluta sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyritækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni bs., Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Rekstrartekjur samstæðunnar á árinu námu kr. 2.027 milljónum. Rekstrarniðurstaða var jákvæð um kr. 234 milljónir. Eigið fé í árslok 2018 var 1.747 milljónir. Skuldahlutfall er 74,5% og skuldaviðmið 40,7%

Sveitarstjórn bókaði þakkir til starfsfólks sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem hefur skilað sér í bættri afkomu.

Hér má nálgast Ársreikning Rangárþings ytra 2018.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?