Ársreikningur Rangárþings ytra 2019 samþykktur

Á fundi hjá sveitarstjórn Rangárþings ytra þann 11. júní s.l. var ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2019 lagður fram til seinni umræðu. Ársreikningurinn hefur að geyma samantekin reikningsskil fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A og B hluta starfsemi sveitarfélagsins sbr. 60.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Rekstrartekjur A og B hluta á árinu 2019 námu kr. 2.011 milljónum. Rekstrarniðurstaða var jákvæð um kr. 164 milljónir. Eigið fé í árslok 2019 var 1.963 milljónir.

Sveitarstjórn samþykkti ársreikninginn samhljóða og færði jafnframt starfsfólki sveitarfélagsins þakkir fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?