Ársreikningur Rangárþings ytra 2021 samþykktur

Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 172 milljónir kr en í A hluta var rekstrarniðurstaðan jákvæð um 170 milljónir kr. Rekstrartekjur A og B hluta á árinu námu 2.330 milljónum kr. Samtals eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2021 nam 2.345 milljónum kr. Þetta kom fram á fundi sveitarstjórnar Rangárþings ytra þann 12. maí s.l. er ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2021 var lagður fram til seinni umræðu. Ársreikningurinn hefur að geyma samantekin reikningsskil fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A og B hluta starfsemi sveitarfélagsins sbr. 60. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er öll starfsemi sem að hluta, eða að öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni bs, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Sveitarstjórn staðfestir samhljóða ársreikning Rangárþings ytra fyrir árið 2021 og þakkaði starfsfólki sveitarfélagsins fyrir góða vinnu við rekstur innan ramma fjárhagsáætlunar sem skilar sér í bættri afkomu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?