Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra
Kaldárholt, borun eftir heitu vatni
Samkvæmt 3. mgr. 26. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna Kaldárholts:
Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 27. maí 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við borun nýrrar vinnsluholu á jörðinni Kaldárholti (L165096) í Rangárþingi ytra.
Holan verður boruð með 100 tonna bor (Rig-16) niður á um 800-1.000 m dýpi. Hún verður með 10 3/4? vinnslufóðringu og vinnsluhlutinn verður boraður með 8 1/2? krónu. Holan verður með steyptri vinnslufóðringu niður á 100 til 400 m dýpi. Áætlaður bortími er 3-5 vikur. Við borlok verður holan prófuð með stuttu blástursprófi (hámark 6 klst.).
Útbúa þarf um 3.200 m2 borplan fyrir borinn á framkvæmdatíma. Vegur liggur nú þegar að dælustöðinni, en þaðan þarf að leggja um 70 m langan veg frá norðurhlið dæluhússins að borplani. Aðflutt efni í borplan og veg verður um 3.000 m3 og verður efnið fengið úr nærliggjandi námum með tilskilin leyfi.
Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda í Kaldárholti sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Veitna ohf skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 eftir því sem við á. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/684/process Á meðal fylgigagna umsóknarinnar er matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar frá 17. apríl 2026, þar sem fram komist er að þeirri niðurstöðu að framkvæmdirnar séu ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í fyrirliggjandi umsókn og fylgiskjölum og í útgefnu framkvæmdaleyfi. Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunni www.skipulagsgatt.is
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra,
Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi