25. júní 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra
Selás, Rangárþingi ytra, óveruleg breyting á deiliskipulagi
Sveitarstjórn samþykkti óverulega breytingu á deiliskipulagi fyrir Selás á fundi 24.6.2026. Breytingin gerir ráð fyrir stækkun heildarflatarmáls þar sem gestahús skulu vera að hámarki 90 m² og útihús, véla og/eða fóðurgeymslur verða að hámarki 400 m². Heimilt er að vera með milliloft í húsum. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010.
Deiliskipulagið öðlast gildi við birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda.
Hellu, 25.6.2026
f.h Rangárþings ytra