Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Félagsþjónustan í Árborg, Velferðarþjónusta Árnesþings og Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur-Skaftafellssýslu vekja athygli á rétti fólks til að sækja um styrki  skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra  og reglugerðar nr. 550/1994 um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra.

Skv. reglugerðinni er heimilt  að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga s.s. náms- og styrktarsjóðir stéttarfélaga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa  í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði ásamt greinargerð og ljósriti af örorkuskírteini, til félagsþjónustu í hverju umdæmi en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.

Umsóknarfrestur er til 15.október 2012

 

Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur - Skaftafellssýslu

Suðurlandsvegi 1-3, 850 Hellu sími: 487 8125.

 

Félagsþjónustan í Árborg,

Austurvegi 2, 800 Selfossi, sími 480 1900.

 

Velferðarþjónusta Árnesþings,

Hveragerði, Sunnumörk 2, 810 Hveragerði, sími: 483 4000

Uppsveitir og Flói, Laugarási, 801 Selfossi, sími: 480 5300

Sveitarfélagið Ölfus, Hafnarbergi , 815 Þorlákshöfn, sími:  480 3800

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?