Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra

Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra

Hvammsvirkjun

 

Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. mgr. 13. gr. laga um umhverfismat nr. 106/2000, sbr. einnig 4. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna Hvammsvirkjunar:

 

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 25. febrúar 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við uppbyggingu Hvammsvirkjunar sem staðsett verður í Rangárþingi ytra og Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

 

Í framkvæmdinni felst uppbygging fyrirhugaðrar vatnsaflsvirkjunar, Hvammsvirkjunar, í neðanverðri Þjórsá. Fyrirhugað inntakslón virkjunarinnar, Hagalón, er áætlað í farvegi Þjórsár norður af Skarðsfjalli. Lónið verður í um 116 m y.s. og um 4 km2 að stærð og rúmmál lónsins verður um 13,2 milljón m3. Stöðvarhús verður að mestu leyti neðanjarðar við norðurenda Skarðsfjalls, í landi Hvamms 1 í Landsveit. Fyrirhuguðu virkjun er staðsett á vatnasviði Þjórsár og Tungnaár þar sem í dag eru sjö vatnsaflsstöðvar og verður virkjunin áttunda og neðsta stöðin. Hvammsvirkjun mun nýta allt að 352 m3/s rennsli og 32 m fall Þjórsár á um 9 km kafla frá svokölluðu Yrjaskeri, rétt ofan við bæinn Haga, og niður fyrir Ölmóðsey, austan við Þjórsárholt. Virkjunin nýtir miðlað rennsli Þjórsár frá lónunum ofar á vatnasviðinu. Flest mannvirki virkjunarinnar verða staðsett innan Rangárþings ytra en virkjunarsvæðið er staðsett innan beggja sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að afl virkjunar verði 95 MW og árleg orkuvinnsla um 760 GWh. Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Hvammsvirkjun sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Landsvirkjunar. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160 frá 2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: www.skipulagsgatt.is/issues/2026/232/process Á meðal fylgigagna umsóknarinnar er álit Skipulagsstofnunar frá 12. mars 2018 um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að fyrirliggjandi matsskýrsla uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í greinargerð sveitarstjórnar skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem er aðgengileg hér: (Greinargerð leyfisveitanda). Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunum www.skipulagsgatt.is og https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun.

 

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is

 

Fh. Rangárþings ytra

Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi