Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra
Búðafossvegur
Samkvæmt 4. mgr. 13. gr. laga um umhverfismat nr. 106/2000, sbr. einnig 3. mgr. 26. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna lagningar Búðafossvegar:
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við lagningu nýs vegar og brúar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra, sem mun bera nafnið Búðafossvegur.
Í framkvæmdinni felst lagning um 7,4 km nýs vegar á milli Þjórsárdalsvegar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landvegar í Rangárþingi ytra. Vegurinn mun heita Búðafossvegur og kemur til með að liggja frá nýju hringtorgi á Þjórsárdalsvegi um land Réttarholts og Minna-hofs, um nýja brú yfir Þjórsá og þaðan um land Vindáss og Minni-Valla að Landvegi. Búðafossvegur verður útfærður samkvæmt viðmiðum vegflokks C8 með tveimur 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum beggja megin. Heildarbreidd vegar er því 8,0 m og verður hámarkshraði vegarins 90 km/klst með áætlaðri umferð um 500 bifreiða daglega. Vegsvæði vegarins verður 40 m breitt, 20 m frá miðlínu í hvora átt. Um er að ræða nokkuð umfangsmikinn veg og brú yfir Þjórsá sem liggur um svæði sem er skilgreint sem landbúnaðarsvæði í aðalskipulagi sveitarfélaganna beggja vegna árinnar. Rúmir 2 km munu liggja í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og um 5 km í Rangárþing ytra. Fyrirhugað hringtorg verður malbikað en annað yfirborð vegarins klætt. Yfir Þjórsá verður byggð 204 m löng tvíbreið stálbitabrú með steyptu gólfi í 5 m hæð yfir vatnsyfirborði árinnar og í fimm höfum; tveimur 36 m löngum og þremur 44 m löngum. Heildarbreidd brúar verður 11 m og frá nyrðri bakka Þjósár að sjálfri brúnni verður Búðafossvegur á um 140 m langri grjótvarðri fyllingu út í ána. Áætluð efnisþörf í framkvæmdina er tæplega 350.000 m3 sem verður fengið frá fjórum efnistökusvæðum og úr skeringum. Eina nýja náman sem opnuð verður vegna framkvæmdanna er Búðanáma sem verður staðsett rétt vestan fyrirhugaðs Búðafossvegar á norðurbakka Þjórsár.
Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Búðafossveg sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Vegagerðarinnar skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/463 Á meðal fylgigagna umsóknarinnar eru matsskylduákvarðanir Skipulagsstofnunar frá 28. ágúst 2009, 2. febrúar 2026 og frá 3. apríl 2025 (sú síðastnefnda vegna stækkunar Búðanámu vegna verkefnisins), þar sem fram komist er að þeirri niðurstöðu að framkvæmdirnar séu ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í greinargerð sem sveitarstjórn lét taka saman í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, 5. mgr. 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, og 26. gr. laga nr. 111/2021, með hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til greinargerða leyfisveitanda vegna matsskyldra framkvæmda skv. 27. gr. laga nr. 111/2021 og 13. gr. eldri laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sem er aðgengileg hér: https://www.ry.is/is/skipulag-og-framkvaemdir-1/skipulags-og-byggingamal/skipulagsmal-til-kynningar Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunum www.skipulagsgatt.is og https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun.
Greinargerð leyfisveitanda má nálgast hér.
Framkvæmdaleyfi sveitarfélagsins má nálgast hér.
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra,
Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi