Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra

Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra

Búrfellslína 1 og 3

Samkvæmt 4. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 4. mgr. 13. gr. laga um umhverfismat nr. 106/2000, sbr. einnig 4. mgr. 27. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við Búrfellslínu 1 og 3:

Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við uppbyggingu tilfærslu á Búrfellslínu 1, tímabundna hækkun á Búrfellslínu 3 vegna tengingar flutningskerfisins við Hvammsvirkjun og færslu Búrfellslínu 1 frá stíflumannvirkjum ásamt nýju tengivirki.

Framkvæmdin tekur til eftirfarandi þátta:

  • Niðurrif núverandi mastra: Fjarlægja þarf 6 möstur í núverandi línu, þ.e. möstur 38-43, bæði möstur meðtalin. Við niðurrif verða möstrin felld í heilu lagi, bútuð niður, flutt í burtu og málmurinn sendur í endurvinnslu. Til verksins verða notaðar sömu vinnuvélar og þarf við reisingu nýrra mastra sem sett verða upp í kjölfarið. Á framkvæmdatíma verða reist 6 timburmöstur sem standa tímabundið og flytja raforku fram hjá framkvæmdasvæðinu og tryggja virkni flutningskerfisins á meðan á framkvæmdum stendur. Timburmöstrin verða fjarlægð að framkvæmdum loknum.
  • Uppsetning á nýjum möstrum: Reist verða 7 ný möstur auk tveggja ramma sem taka á móti línunni og tengja við tengivirkið. Fjögur mastranna verða M- burðarmöstur úr stálgrind, 23,6–25,8 m á hæð, og þrjú þeirra fjórfótungsmöstur, 16 – 44 m á hæð. Þverslá eða brú í burðarmöstrum er 20 m löng.
  • Slóðagerð: Línuvegir fylgja núverandi línum og munu aðkomu- og vinnuvegir vegna Hvammsvirkjunar nýtast við framkvæmdirnar. Út frá þessum vegum þarf að gera nýja aðkomuslóða að nokkrum nýjum möstrum. Alls eru nýir slóðar að möstrum um 450 m innan Rangárþings Ytra.

Fætur burðarmastra munu standa á forsteyptum undirstöðum og stög halda möstrunum í skorðum. Við jörð tengjast stög við stagfestur, ýmist steyptar staghellur eða bergbolta. Til að koma undirstöðum og stagfestum fyrir þarf að grafa, fleyga, sprengja eða bora. Fyrir undirstöður mastra er gert ráð fyrir að grafnar verði 2 m djúpar holur að stærð 2,5 x 3,0 m. Þar sem klöpp er við yfirborð er fleygað 1,0 – 1,5 m niður í klöppina og forsteyptri undirstöðu komið fyrir eða bergboltar festir ofan í klöppina og undirstaða steypt utan um þá. Þegar undirstöðum mastra og stagfestum hefur verið komið fyrir þarf að fylla að þeim með burðarhæfu efni. Uppgrafið efni verður nýtt að eins miklu leyti og mögulegt er.

Áætluð efnisþörf framkvæmdanna er um 6.500 m3 og er það einkum efni í línuslóða að möstrum, mastraplön og undirstöður mastra. Ekki verða opnaðar nýjar námur fyrir þessa framkvæmd heldur verður efnið fengið úr námum í nágrenninu sem hafa tilskilin leyfi.

Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Búrfellslínu 1 og 3 sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Landsnets skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/466 Á meðal fylgigagna umsóknarinnar er álit Skipulagsstofnunar frá 12. mars 2018 um mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að fyrirliggjandi matsskýrsla uppfylli skilyrði laga og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum og umhverfisáhrifum hafi verið lýst á fullnægjandi hátt. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í greinargerð sveitarstjórnar skv. 13. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, sbr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sem er aðgengileg hér: https://www.ry.is/is/skipulag-og-framkvaemdir-1/skipulags-og-byggingamal/skipulagsmal-til-kynningar Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunum www.skipulagsgatt.is og https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun.

Greinargerð leyfisveitanda má nálgast hér. 

Útgefið framkvæmdaleyfi má nálgast hér. 

Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.

 

Fh. Rangárþings ytra,

Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi