Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra
Vaðfitjanáma
Samkvæmt 3. mgr. 26. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021, er hér auglýst útgáfa framkvæmdaleyfis vegna Vaðfitjanámu:
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 15. apríl 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við efnistöku, allt að 40.000 m3, á efnistökusvæði E125, Vaðfitjanámu, í Rangárþingi ytra.
Í framkvæmdinni felst allt að 40.000 m3 efnistaka í Vaðfitjanámu, efnistökusvæði E125, á Þjórsáreyrum, austan við Þjórsá og sunnan Sultartangalóns og Vaðöldu, og tímabundin haugsetning til loka sumars 2026, á allt að 200.000 m3 af óunnu efni á svæðinu frá nálægum efnistökusvæðum. Fyrirhuguð efnistaka og haugsetning efnis er ætluð til framkvæmda við Vaðölduver. Þar sem vinna þarf efni þarf að setja upp hörpunar- og mölunarsamstæðu. Búist er við að settur verði upp kaffiskúr fyrir 2-3 menn á svæðinu. Gert er ráð fyrir að raforka fyrir efnisvinnslu verði framleidd með dísilstöð.
Framkvæmdaleyfið tekur til þeirra framkvæmda við Vaðfitjanámu sem fyrirhugaðar eru innan sveitarfélagamarka Rangárþings ytra á vegum Landsvirkjunar skv. framangreindu. Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyldum mannvirkjum innan framkvæmdarsvæðisins í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012 eftir því sem við á. Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/639/process Á meðal fylgigagna umsóknarinnar er matsskylduákvörðun Skipulagsstofnunar frá 18. febrúar 2026, þar sem fram komist er að þeirri niðurstöðu að framkvæmdirnar séu ekki líklegar til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í fyrirliggjandi umsókn og fylgiskjölum og í útgefnu framkvæmdaleyfi. Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunni www.skipulagsgatt.is
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í Lögbirtingablaði. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra,
Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi