Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra
Landmannalaugar, ræsi í Námskvísl
Skipulagsfulltrúi auglýsir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna niðursetningar á ræsi á vaði yfir Námskvísl í Landmannalaugum.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 10. júní 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við ræsi í Námskvísl í Landmannalaugum.
Sett verða upp tvö ræsi, um 1 m í þvermál og 9 metra löng. Framkvæmdin er ekki talin hafa mikil áhrif en mun breyta árfarvegi að einhverju leyti. Áhrifin eru þó meira jákvæð þar sem bílar munu ekki festast í vaðinu og við það minnkar hættan á olíumengun, með tilheyrandi raski á jarðvegi og lífríki.
Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/849/process Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í fyrirliggjandi umsókn og fylgiskjölum og í útgefnu framkvæmdaleyfi. Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunni www.skipulagsgatt.is
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra,
Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi