Auglýsing um útgáfu framkvæmdaleyfis í Rangárþingi ytra
Norður-Nýibær, uppbygging aðkomuvegar að ‚IB38
Skipulagsfulltrúi auglýsir útgáfu framkvæmdaleyfis vegna vegagerðar í nýrri íbúðarbyggð ÍB38 þar sem gert hefur verið ráð fyrir alls 16 íbúðarlóðum.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum þann 10. júní 2026 útgáfu framkvæmdaleyfis vegna framkvæmda við veglagningu að umræddum lóðum innan ÍB38.
Samkvæmt framkvæmdalýsingu verður framkvæmdinni háttað þannig að lífrænn jarðvegur og svarðlag verður fjarlægt áður en vegur verður byggður upp. Þessi líffræni jarðvegur verður síðan nýttur í fláafleyga vegarins og aðra tilfallandi fyllingu. Að því loknu verður lagt um 30 cm styrktarlag úr 0-80 mm brotnu efni og um 30 cm burðarlag af 0-60 mm brotnu efni. Malarslitlag verður síðan lagt ofan á með brotnum 0-25 mm mulningi. Áætlað er að burðarlagsefni verði fengið úr námu á Keldum eða úr námu í Hvammi í Holtum. Yfirborð vegar verður alltaf að lágmarki 15 cm yfir yfiborð aðliggjandi lands. Gert er ráð fyrir að akbraut verði 5,0 m að breidd með 0,5 m vegöxl hvoru megin, þannig að heildarbreidd vegarins verði 6,0 m. Sú útfærsla er í samræmi við ákvæði deiliskipulags, þar sem kveðið er á um að vegbreidd skuli vera að lágmarki 5 m og að burðarþol aðkomuvegar skuli vera a.m.k. 32 tonn til að tryggja aðgengi stærri farartækja, þar á meðal neyðarbifreiða.
Framkvæmdaleyfið nær til framkvæmda sem er nánar lýst í umsókn framkvæmdaaðila, greinargerð framkvæmdaaðila og öðrum fylgiskjölum umsóknar sem nálgast má hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/850/process Leyfið er bundið við þau skilyrði og mótvægisaðgerðir sem fram koma í fyrirliggjandi umsókn og fylgiskjölum og í útgefnu framkvæmdaleyfi. Nánari umfjöllun og upplýsingar um framkvæmdina má nálgast á vefsíðunni www.skipulagsgatt.is
Ákvörðun sveitarstjórnar um útgáfu framkvæmdaleyfis er kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur 1 mánuður frá því að auglýsingu um útgáfu framkvæmdaleyfisins birtist í. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.uua.is.
Fh. Rangárþings ytra,
Haraldur Birgir Haraldsson, skipulagsfulltrúi