Aukaúthlutun í Átak til atvinnusköpunar

Átak til atvinnusköpunar

Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átak til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.

Markmið verkefnisins:

- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.

- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja.

Sérstök áhersla er lögð á:

- Hönnun

- Afrþeying í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á www.nmi.is. Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hildur@nmi.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?