Mynd af uppgraftarsvæðinu í Odda
Mynd af uppgraftarsvæðinu í Odda

Undanfarin ár hefur farið fram uppgröftur á manngerðum hellum í Odda auk annarra fornleifarannsókna í Oddarannsókninni, þverfaglegu verkefni sem styrkt hefur verið af RÍM sjóðnum. Tvö ár eru eftir af því verkefni og færist áherslan á frekari úrvinnslu gagna sem aflað hefur verið, útgáfu og ráðstefnur. Enn er þó stór hluti hellakerfisins í Odda órannsakaður og var þess því freistað að leita styrkja til áframhaldandi rannsókna til Fornminjasjóðs. Þau gleðilegu tíðindi bárust á dögunum að rannsóknin fær veglegan styrk úr sjóðnum þannig að rannsóknin mun halda áfram í sumar.

Unnið verður að því að grafa upp annan af tveimur gríðarstórum hrundum hellum syðst í túninu í Odda, þar sem fyrri rannsóknir hafa farið fram.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?