Barnamenning á sumardaginn fyrsta

Í tilefni barnamenningardaga á Suðurlandi verður ýmislegt í gangi í Rangárþingi ytra.

Dagskráin:

Listasýning í Miðjunni á Hellu

  • Ungir nemendur sýna afrakstur listanámskeiðsins „Skiss og skemmtun“
  • Staðsetning: 2. hæð Miðjunnar
  • Dagsetning: frá 23. apríl
  • Tímasetning: Á opnunartíma skrifstofu

Sumarhátíð Loftbolta.is

  • Hoppukastalar, loftboltar og fjör
  • Staðsetning: Við sparkvöllinn á Hellu
  • Dagsetning: 23. apríl
  • Tímasetning: 13–15

Gervigrasvöllurinn vígður

  • Nýi gervigrasvöllurinn vígður formlega
  • Staðsetning: Gervigrasvöllurinn á Hellu
  • Dagsetning: 23. apríl
  • Tímasetning: 15:30

Opið hús í nýbyggingu Grunnskólans á Hellu - Kíkjum í heimsókn í nýja skólann

  • Staðsetning: Nýbygging Grunnskólans á Hellu
  • Dagsetning: 23. apríl
  • Tímasetning: 16-17
  • Kaffi og kruðerí

Við fáum að sjá skólann eins og hann er í dag enda framkvæmdir langt komnar. Byggingin verður síðan formlega opnuð og vígð í haust og þá verður íbúum boðið aftur í heimsókn.