Barnamenningardagar Suðurlands

Í kringum sumardaginn fyrsta verður mikið um dýrðir víða á Suðurlandi þegar Barnamenningardagar Suðurlands fara fram dagana 22. til 26. apríl. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá og skemmtilega viðburði fyrir börn og fjölskyldur um allt Suðurland.

Ljósmyndakeppni

Sérstakt sameiginlegt verkefni Barnamenningardaga er ljósmyndaverkefnið „Suðurland með augum barna“. Þar eru börn hvött til að taka myndir af nærumhverfi sínu. Markmiðið með verkefninu er að veita innsýn í upplifunarheim barna á og sjá umhverfið út frá þeirra sjónarhorni. Nánar má lesa um keppnina með því að smella hér og hvetjum við börn til þáttöku og aðstandendur til að aðstoða þau eins og þarf.

Sumardagurinn fyrsti

Aðal hátíðardagurinn hjá okkur í Rangárþingi ytra verður 23. apríl, á sumardaginn fyrsta, og verður ýmislegt um að vera:

  • Árleg sumarhátíð Loftbolta.is við sparkvöllinn kl. 13-15
  • Opnun listasýningar barna á 2. hæð Miðjunnar, fyrir utan skrifstofu Rangárþings ytra
  • Úrslit ljósmyndakeppni barna tilkynnt og myndir birtar á ry.is
  • Vígsla gervigrasvallarins
  • Opið hús í nýbyggingu Grunnskólans á Hellu

DAGSKRÁ VERÐUR AUGLÝST NÁNAR ÞEGAR NÆR DREGUR!