Garðar Þorfinsson héraðsfulltrúi Landgræðslunnar ásamt elsta árgangi Heklukots.
Garðar Þorfinsson héraðsfulltrúi Landgræðslunnar ásamt elsta árgangi Heklukots.
Undanfarin haust hefur útskriftarhópur leikskólans Heklukot á Hellu safnað birkifræi og fært Landgræðslunni að gjöf. Landgræðslan hefur svo sáð fræinu á ákjósanlega staði í nágrenni Hellu þar sem mun vaxa upp myndarlegur birkiskógur í framtíðinni.
 
Í ár var engin undanteking á þessu samstarfi og fór Garðar Þorfinnsson héraðsfulltrúi Landgræðslunnar og tók á móti fræinu í leikskólanum og fræddi þau um leið um hvað yrði gert við fræið og mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna.
 
Sem þakklætisvott þá hefur Landgræðslan gefið Leikskólanum birkiplöntur sem hún hefur afhent krökkunum við útskrift úr leikskólanum.
 
 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?