Mynd: Blaklið Dímonar/Heklu
Mynd: Blaklið Dímonar/Heklu

Kvennablaklið Dímonar-Heklu mun um helgina 26-27 febrúar halda Íslandsmót kvenna í blaki aðra umferð af þremur í samvinnu við Blaksamband Íslands, á Hvolsvelli og Hellu. Það verða spilaðar tvær deildir en þær eru 3. og 4. deild. Í hvorri deild eru 12 lið og eigum við lið í þeim báðum. Reikna má með að við séum að fá vel yfir tvöhundruð manns á svæðið í gistingu og mat þessa helgi. Hvetjum við fólk endilega til að kíkja í íþróttahúsin og hvetja okkar konur.

Kveðja María Rósa Einarsdóttir formaður blakdeildar Dímonar-Heklu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?