25. júní 2026
Bókasafnið á Hellu hefur nú flutt í nýbyggingu skólans og verður opið á nýjum stað í kvöld, fimmtudaginn 25. júní, frá kl. 19:00 til 20:00.
Gengið er inn um nýjan aðalinngang skólans við Þingskála, á móts við Villt og alið.
Íbúar eru hvattir til að líta við, skoða nýja aðstöðuna og nýta tækifærið til að næla sér í góða bók fyrir sumarið og við minnum á að öllum íbúum Rangárþings ytra býðst að nýta sér þjónustu bókasafnsins endurgjaldslaust.
Þá eru börn og foreldrar þeirra sérstaklega minnt á sumarlesturinn, enda er lestur alltaf mikilvægur, líka yfir sumarmánuðina.