F.v. Hulda Sigurðardóttir starfsmaður íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Ragnar Jóhannsson Heilsu-, íþr…
F.v. Hulda Sigurðardóttir starfsmaður íþróttamiðstöðvarinnar á Hellu, Ragnar Jóhannsson Heilsu-, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Þórhallur Svavarsson
og Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri.

 

Þau tímamót urðu nú í sumar að Þórhallur Svavarsson sem hefur verið forstöðumaður Íþróttamiðstöðva Rangárþings ytra nú í rúmlega 20 ár lét af því starfi eftir afar farsælan feril. Við boltanum tók Ragnar Ævar Jóhannsson sem nú gegnir nýju starfi Heilsu- Íþrótta og Tómstundafulltrúa sveitarfélagsins. Þórhallur var upphaflega ráðinn sem forstöðumaður Íþróttamiðstöðvar hjá Rangárvallahreppi árið 1999 en síðan frá árinu 2002 hjá sveitarfélaginu Rangárþingi ytra. Allir sem til þekkja vita að Þórhallur hefur gegnt þessu starfi af mikilli trúmennsku og lipurð allan þennan tíma. Hann hefur verið vakinn og sofinn yfir verkefninu, hvort sem um er að ræða skipulag og utanumhald á íþróttastarfi barna og unglinga eða  undirbúningur Þorrablóta og erfidrykkkja. Eru Þórhalli þökkuð vel unnin störf sem forstöðumaður hjá  sveitarfélaginu og honum óskað bjartrar framtíðar og velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann nú tekur sér fyrir hendur.

 

Pistill þessi birtisti í september útgáfu fréttabréfs Rangárþings ytra sem nálgast má hér. 

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?