Breyting á aðalskipulagi Hellu, Rangárþingi ytra 2010-2022

Miðbær, Dynskálar og Rangárbakkar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitastjórnar Rangárþings ytra varðandi breytingar á aðalskipulagi.

Sveitastjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 11. október 2012 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Tillagana var auglýst frá 20. júní til og með 1. ágúst 2012. Athugasemdir gáfu ekki tilefni til breytinga á tillögunni og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Birgir Haraldsson,
Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?