Breyting á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.  Miðbær, Dynskálar og Rangárbakkar á Hellu.

Breyting á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022.

Miðbær, Dynskálar og Rangárbakkar á Hellu.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst niðurstaða sveitastjórnar Rangárþings ytra varðandi breytingar á aðalskipulagi.

Sveitastjórn Rangárþings ytra samþykkti tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Rangárþings ytra 2010-2022. Tillagan var endurauglýst vegna formgalla í fyrri auglýsingu frá 5. des 2012 til 16. jan 2013. Engar athugasemdir bárust og hefur hún verið send Skipulagsstofnun til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is

Haraldur Birgir Haraldsson

Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?