Breytingar á sorphirðu á næstunni

Gera þarf breytingu á sorphirðudögum á morgun og næstu daga fyrir páska vegna viðhalds sorpbifreiðar og verða þeir skv. eftirfarandi:

Breytingar í Rangárþingi ytra og Ásahrepp:

  • 24. mars: Sorphirða á pappa/plasti í Þykkvabæ, Ægissíðu, Lyngási, Vetleifsholtshverfi, Lækjarbraut, Rauðalæk og bæjum í kringum Rauðalæk færist yfir á miðvikudaginn 25. mars
  • 25. mars: Sorphirða á pappa/plasti fyrir Árbæjarveg, Bjallaveg og Landveg ofan Hagabrautar færist yfir á þriðjudaginn 31. mars.
  • 27. mars: Sorphirða á pappa/plasti við Rangárvallaveg, Þingskálaveg, á Gaddstöðum, Varmadal, Selalæk og Kirkjubæ færist yfir á miðvikudaginn 1. apríl.
  • 30. mars: Sorphirða á pappa/plasti fyrir Ásveg, Þjóðólfshaga, Riddaragarð, Fosshólahring, Landveg að Hagabraut, Grenjar, Reiðholt og Syðri-Rauðalæk verður 27. mars í staðinn fyrir 30. mars.
  • 30. mars:  Sorphirða á pappa/plasti fyrir Ásahrepp, Heiðarveg og Hagabraut verður 30. mars í stað 31. mars.

Breytingar í Rangárþingi eystra:

  • 26. mars: Sorphirða á plasti á Hvolsvelli færist yfir á miðvikudaginn 1. apríl.