Fossabrekkur í Ytri-Rangá
Fossabrekkur í Ytri-Rangá

FUNDARBOÐ

 

41. fundur byggðarráðs Rangárþings ytra verður haldinn að Suðurlandsvegi 1-3, 27. október 2021 og hefst kl. 08:00.

 

Dagskrá:

Almenn mál

1.

2101039 - Rekstraryfirlit sveitarfélagsins 2021

 

Yfirlit um rekstur janúar til september

2.

2110067 - Fjárhagsáætlun 2021 - viðauki 7

 

Tillaga að viðauka 7 við fjárhagsáætlun 2021.

3.

2106065 - Fjárhagsáætlun 2022-2025

 

Tillaga um útsvarsprósentu.

4.

2102037 - Umsókn um rekstrarstyrk - Kvennaathvarfið

 

Fyrir árið 2022

5.

2009033 - Ósk um styrk - Æskulýðsnefnd Rangárv.prófastd.

 

Vegna æskulýðsmóts í Vatnaskógi.

6.

2110015 - Styrkbeiðni - dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu

 

Félag sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu fer þess á leit við Rangárþing ytra að sveitarfélagið styrki dag sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu 2021 um 50.000.- krónur.

7.

2110064 - LM 2022 - ósk um stuðning vegna undirbúnings

 

Styrkbeiðni frá Rangárbökkum ehf vegna fyrirhugaðs Landsmóts Hestamanna 2022.

8.

2110063 - Beiðni um styrk á móti fasteignagjöldum 2021 - Rangárbakkar ehf

 

Erindi frá Rangárbökkum ehf.

9.

2110062 - Ósk um styrk á móti fasteignagjöldum 2021 - Rangárhöllin ehf

 

Erindi frá Rangárhöllinni ehf.

10.

2110049 - Kjarralda 1, lóðaúthlutun

 

Kjarralda 1
Gildar umsóknir eru:

Haukur Harðarson
Siggi byggir ehf

11.

2110050 - Kjarralda 2, lóðaúthlutun

 

Kjarralda 2
Gildar umsóknir eru:

Naglafar ehf
Helgi Viljálmsson
Haukur Harðarson
Siggi byggir ehf

12.

2110051 - Kjarralda 3, lóðaúthlutun

 

Kjarralda 3
Gildar umsóknir eru:

BF-verk ehf
Siggi byggir ehf

13.

2110052 - Kjarralda 4, lóðaúthlutun

 

Kjarralda 4
Gildar umsóknir eru:

Naglafar ehf
Smári Vilhjálmsson
Siggi byggir ehf
Haukur Harðarson

14.

2110058 - Kjarralda 5, umsókn um lóð

 

Naglafar ehf óskar eftir að fá úthlutaðri lóð nr. 5 við Kjarröldu til að byggja á henni einbýlishús sbr. umsókn dags. 26.9.2021. Reiknað er með að hefja framkvæmdir 2022 og að þær taki 12 mánuði.

15.

2110053 - Kjarralda 6, lóðaúthlutun

 

Kjarralda 6
Gildar umsóknir eru:

Naglafar ehf
Haukur Harðarson

16.

2110047 - Guðrúnartún 1, lóðaúthlutun

 

Guðrúnartún 1
Gildar umsóknir eru:

Örk fasteignir ehf
Málfríður Eva R. Jörgensen
Húshás ehf
Roberto Biraghi
Róbert Árni Jörgenson
Fríða Hrund Kristinsdóttir
Egosspa ehf

17.

2110048 - Guðrúnartún 3, lóðaúthlutun

 

Guðrúnartún 3
Gildar umsóknir eru

Málfríður Eva R. Jörgensen
Húshás ehf
Roberto Biraghi
Róbert Árni Jörgenson
Fríða Hrund Kristinsdóttir
Ergosspa ehf

18.

2110054 - Langalda 14, lóðaúthlutun

 

Langalda 14
Gildar umsóknir eru:

Siggi byggir ehf
KHhús ehf
Naglafar ehf

19.

2110055 - Langalda 16, lóðaúthlutun

 

Langalda 16
Gildar umsóknir eru:

Siggi byggir ehf
Naglafar ehf

20.

2110026 - Sporðalda 1, Umsókn um lóð

 

Siggi byggir ehf óskar eftir að fá úthlutaðri lóð nr. 1 við Sporðöldu til að byggja á henni raðhús úr timbri sbr. umsókn dags. 14.10.2021. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í janúar og framkvæmdatími áætlaður um 8 mánuðir.

21.

2110057 - Sandalda 10. Umsókn um lóð

 

Sæunn Björg Þrastardóttir óskar eftir að fá úthlutaðri lóð nr. 10 við Sandöldu til að byggja á henni einbýlishús úr timbri sbr. umsókn dags. 21.10.2021. Æskilegur byrjunartími framkvæmda er í júlí 2022 og byggingartími áætlaður 5 mánuðir.

22.

2109028 - Dynskálar 51. Umsókn um lóð

 

Smiðjan sf óskar eftir að fá úthlutaðri lóðinni nr. 51 við Dynskála til að byggja á henni iðnaðarhúsnæði úr stáli. Æskilegur byrjunartími framkvæmda 2022

23.

2011029 - Faxaflatir 1 og 2 og Fákaflatir 1 og 2. Umsókn um lóðir

 

Minnisblað vegna óska New Horizon ehf að hefja uppbyggingu á Faxaflötum 2 skv. gildandi skipulagi.

24.

1909001 - Vegahald í frístundabyggðum

 

Umsóknir og erindi vegna vegagerðar

25.

2003015 - Málefni hestamanna við Hesthúsgötu á Hellu

 

Yfirlit varðandi þátttöku í átaksverkefni.

Fundargerðir til kynningar

26.

2110005F - Stjórn Suðurlandsvegar 1-3 hf - 17

27.

2109026 - Aðalfundur Suðurlandsvegur 1-3 hf 2021

 

Fundargerð frá 18.10.2021

Mál til kynningar

28.

2110061 - Drög að reglugerð um leiðbeiningar og viðmið um sjálfbæra landnýtingu - í samráðsgátt

 

Í samráðsgátt stjórnvalda eru nú til umsagnar fram til 11. nóvember 2021 drög að reglugerð um leiðbeiningar og viðmið um sjálfbæra landnýtingu. Reglugerðin snertir m.a. á þýðingarmiklum atvinnugreinum í Rangárþingi ytra s.s landbúnaði og ferðaþjónustu.

29.

2009010 - Þátttaka í jafnvægisvog

 

Rangárþing ytra hlaut viðurkenningu FKA 2021

 

24.10.2021

Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri.

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?