Byggðastofnun auglýsir eftir tilnefningum til Landstólpans

Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, er viðurkenning sem Byggðastofnun veitir árlega á ársfundi sínum. Um er að ræða hvatningarverðalun til einstaklinga, fyrirtækja, hópa eða verkefna sem vakið hafa athygli á byggðamálum, styrkt samfélög í landsbyggðunum eða stuðlað að framgangi málefna landsbyggðanna, ýmist í heild eða innan tiltekins byggðarlags, s.s. innan nýsköpunar, byggðaþróunar, atvinnuþróunar, sjálfbærni eða menningar.

 

Hér með er lýst eftir tilnefningum um handhafa Landstólpans 2024. Dómnefnd velur úr þeim tillögum sem berast.

Tillögur sendist á netfangið: helga@byggdastofnun.is eða andri@byggdastofnun.is

Frestur til að skila inn tilnefningum rennur út 1. mars.

 

Hér fyrir neðan er auglýsingin frá þeim:

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?