Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra og Ólafur F. Leifsson frá Tré og Straumi.

Fyrir a…
Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra og Ólafur F. Leifsson frá Tré og Straumi.

Fyrir aftan standa Jón Sæmundsson hjá VERKÍS, Björk Grétarsdóttir oddviti og formaður heilsu-, íþrótta- og tómstunanefndar, Sindir Snær Bjarnason varamaður í heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd og starfsmaður íþróttahúss, Hjalti Tómasson starfandi oddviti, Erna Sigurðardóttir í heilsu- íþrótta- og tómstundanefnd, Þórhallur Svavarsson forstöður íþróttamiðstöðvar og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir sveitarstjórnarmaður.

Rangárþing ytra og verktakafyrirtækið Tré og Straumur ehf í Skeið- og Gnúpverjahreppi hafa undirritað verksamning vegna viðbyggingar sem rísa á við Íþróttahúsið á Hellu. Um er að ræða tvílyft hús úr límtré, klætt steinullareiningum með einhalla þaki við núverandi íþróttahús. Á neðri hæðinni verður áhaldageymsla en á þeirri efri verður líkamsræktaraðstaða sem tengist núverandi íþróttamiðstöð um göngusvalir í íþróttahúsi. Verkáætlun gerir ráð fyrir að hafist verði handa í byrjun júní og að húsið verði fokhelt í haust og  áhaldageymslan verði tilbúin til notkunar 15. desember n.k. Verklok eru áætluð þann 1. júní 2020. Verksamningurinn hljóðar upp á 123 mkr. Samningurinn var undirritaður í Íþróttahúsinu á Hellu að viðstöddum m.a. fulltrúum sveitarstjórnar og Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefndar sveitarfélagsins. Þessi framkvæmd mun bæta aðstöðu Íþróttamiðstöðvarinnar til mikilla muna og eykur enn á fjölbreytta nýtingarmöguleika Íþróttahússins.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?