Dagný Brynjars í hópi þeirra bestu í háskólaboltanum í USA

Dagný Brynjarsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, er í hópi 31 leikmanns sem samtök knattspyrnuþjálfara í Bandaríkjunum hafa tilnefnt í kjöri um besta leikmann bandaríska háskólaboltans.

Sigurvegari verður útnefndur 10. janúar og hlýtur Hermann-bikarinn. Dagný var önnur af tveimur leikmönnum Florida State háskólans sem voru tilnefndir en hún skoraði 9 mörk og lagði upp 9 á síðustu leiktíð. 

Dagný er uppalin hjá KFR en hún gekk í raðir Vals árið 2007 þar sem hún hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari. Mark hennar gegn Hollandi á EM í Svíþjóð í sumar skaut Íslandi upp úr riðlakeppninni í fyrsta skipti í sögunni.

Mbl.is greindi frá þessu í morgun: http://www.mbl.is/sport/fotbolti/2013/08/21/dagny_i_hopi_theirra_bestu/

Sjá hér frétt á www.seminoles.com: http://www.seminoles.com/sports/w-soccer/spec-rel/082013aaa.html

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?