Dagskrá Töðugjalda 2017

Töðugjöld verða haldin dagana 18. - 20. ágúst með smá upphitun þann 17. ágúst þar sem öllum íbúum er boðið í leikhús. Dagskráin er glæsileg og getum lofað frábærri skemmtun fyrir alla aldurshópa frá 0-100 ára. Við erum orðin mjög spennt fyrir dagskránni og svo sannarlega kominn tími á að kynna dagskrána.

Töðugjaldabæklingnum verður dreift í öll hús í Rangárvallasýslu fyrir helgi. Hann er einnig aðgengilegur hér.

Dagskráin.

Fimmtudagur 17. ágúst

20:00 Rangárþing ytra býður í leikhús!
Gísli á Uppsölum settur upp í Menningarsalnum á Hellu. Aðgangur ókeypis.

Föstudagur 18. ágúst

14:00 Frisbígolfvöllur í Nesi vígður.
Útivistarsvæði í Nesi hefur verið í bígerð í þónokkurn tíma. Nú er búið að setja þar upp frisbígoflvöll, aparólu, útigrill og borð. Það er því tilvalið að fara með fjölskylduna og eiga skemmtilegan dag á þessu frábæra svæði. Frisbídiskar fyrir frisbígolf fást hjá Olís á Hellu.

16:00 Skógræktarfélag Rangæinga færir Rangárþingi ytra gjöf í tilefni 90 ára afmælis Hellu. Nánar auglýst síðar.

20:00 Þorparöltið hefst.
Bláa hverfið mun bjóða heim í ár. Á annarri opnu þessa bæklings má sjá skiptingu hverfanna. Þeir sem bjóða heim munu setja logandi ljós við gangstéttina hjá sér.

Laugardagur 19. Ágúst

09:15 Gunnarshólmi fluttur í Fjóshelli á Ægissíðu.
Bræðurnir Ólafur Stolzenwald og Gústav Stolzenwald hafagetið sér gott orð í tónlist. Að morgni laugardags munu þeir flytja þetta ægifagra rangæska ljóð í Fjóshellinum á Ægissíðu!

10:00-12:00 Morgunmatur í Íþróttahúsinu.
Gestum Töðugjalda er boðið í léttan morgunverð í Íþróttahúsinu á Hellu. Kvennakórinn Ljósbrá mun reiða hann fram og eru fjölmörg fyrirtæki sem styrkja hann. Þær Glódís Margrét Guðmundsdóttir og Þórunn Elfa munu flytja nokkur lög og einnig mun Snæbjörg Guðmundsdóttir flytja nokkur lög. Ágúst Sigurðsson mun flytja ávarp og umhverfisviðurkenningar verða veittar.

11:30-16:30 Bíla og tækjasýning við árbakkann.
Glæsileg tækjasýning verður við árbakkann við Þrúðvang. Þar verða til sýnis ýmis tæki af Suðurlandi og verður enginn svikinn af því að kíkja á þessa frábæru sýningu. Þarna verða m.a. landbúnaðartæki, torfærubílar, fornbílar, björgunartæki og fleira!

11:30-16:00 Markaðstjaldið
Markaðstjaldið verður staðsett við grunnskólann þar sem önnur dagskrá fer einnig fram. Á markaðnum verður karnival stemming og því um að gera að kíkja við.

11:30-15:30 Leiktækin sett upp.
Leiktækin í ár verða sérstaklega glæsileg! Hoppuróla, hringekja, hoppukastalar og bungee run!

13:00 Söguganga um Hellu.
Þær Unnur Þórðardóttir og Erna Sigurðardóttir munu leiða sögugöngu um Hellu. Gangan hefst við styttuna af Þorsteini Björnssyni á árbakkanum.

13:00-15:00 Hraðmót Arionbanka í fótbolta á fótboltavelli.
7 manns inná í einu, 8 lið og spilað í 2x10 mín. Skráning fer fram hjá mótsstjóra, Guðmundi Gunnari Guðmundssyni í s: 8489069 og er síðasti skráningardagur 19. ágúst kl. 10:00.

13:30-15:30 Barnadagskrá á aðalsviðinu.
Felix Bergsson
Leikhópurinn Lotta
Hæfileikakeppni barnanna
Verðlaunaafhending legokeppninnar
Fegurðar- og hæfileikakeppi dýranna

15:45 Rangárljós - síðasta handtakið!
Síðasti bærinn tengdur og verkinu þar með formlega lokið.

16:00-20:30 Hlé á formlegri dagskrá.

Tilvalið að skella sér í sund á Hellu eða Laugalandi, fara á veitingastað og fá sér að borða og fara í létta gönguferð um Hellu.

20:15 Skrúðgöngur halda af stað.
Skrúðgöngur hverfanna fara af stað og fara fylktu liði á íþróttavöllinn. Hvert hverfi skal ákveða hvar skal hittast innan hverfisins.

20:30-23:00 Kvöldvaka á íþróttavelli.
Kynnir er Felix Bergsson. Verðlaun verða veitt fyrir flottustu skreytinguna og flottasta hverfið. Stærstu vinningarnir verða dregnir út í Töðugjaldahappadrættinu. Bjarni Töframaður mætir á svæðið, Áttan tekur lagið og svo lýkur skemmtun­inni með brekkusöng undir stjórn Jónsa „í svörtum fötum“. Flugeldasýning Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu mun svo setja punktinn yfir i-ið!

24:00-03:00 Stórdansleikur með hljómsveitinni „Í Svörtum Fötum“ í reiðhöllinni að Rangárbökkum. Er ekki um að gera að skella sér á alvöru sveitaball?!? Fólk þarf ekki að mæta á spariskónum en í spariskapi! Pokaball. Aldurstakmark 18 ára. Miðaverð 3.000 kr.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?