Dagur atvnnulífsins á Suðurlandi 28.apríl

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Dag ativnnulífsins á Suðurlandi sem haldinn verður þann 28.apríl nk. en að deginum stendur Svf. Árborg í samstarfi við Háskólafélagi Suðurlands (HfSu), Atorku og Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA).

Þema ráðstefnunnar er atvinnulífið, nýsköpun og menntun á Suðurlandi þar sem fyrirlesarar koma úr röðum atvinnurekanda, Samtökum atvinnulífsins, Rannís, FSu og Háskólafélags Suðurlands. Eftir erindin verður vinnustofa þar sem þátttakendur taka virkan þátt í að móta framtíð sunnlensks atvinnulífs.

Áhugasöm fyrirtæki, félög og stofnanir geta kynnt starfsemi sína í kynningarbásum yfir daginn. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Rafnar Ólafsson, atvinnu- og viðburðafulltrúi, olafur.rafnar@arborg.is

Í lok dags verður öllum ráðstefnugestum boðið í móttöku í Skyrlandi sem er ný upplifunarsýning í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss.

Atvinnulífið á Suðurlandi er öflugt og fjölbreytt. Mætum nýjum tækifærum af krafti og eflum í sameiningu samstöðu atvinnulífsins á Suðurlandi.

Skráning á daginn er hér

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?