Dagur sauðkindarinnar á Hvolsvelli 10. október

Dagur sauðkindarinnar á Hvolsvelli 10. október

Dagur sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu verður haldinn laugardaginn 10. október í Reiðhöllinni Skeiðvangi á Hvolsvelli. Dómarar frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, RML, hefja störf kl. 10:00 en sýning og röðun í sæti hefst kl. 13:00.

Keppt verður í flokkum hyrndra og kollóttra hrúta og hyrndra og kollóttra gimbra. Vegleg verðlaun verða veitt fyrir bestu gripina og mun Gunnhildur Myndlist / ART mála verðlaunaplatta fyrir efstu sætin.

Einnig verða veittir farandgripir fyrir bestu fimm vetra ána, besta veturgamla hrútinn og ræktunarbú ársins. Þar verður miðað við niðurstöður ársins 2025 samkvæmt upplýsingum frá RML.

Frá hverjum bæ er heimilt að koma með til dóms:

  • allt að fimm hyrnda hrúta
  • allt að fimm kollótta hrúta
  • allt að fimm hyrndar gimbrar
  • allt að fimm kollóttar gimbrar

Dómur kostar 1.200 kr. fyrir hvert lamb og er óskað eftir að greitt verði með reiðufé. Hægt verður að fá niðurstöður dómsins í lok dags og skrá þær í Fjárvís en nefndin sér ekki um þá skráningu.

Bændur eru einnig hvattir til að koma með litrík lömb og taka þátt í keppni um litfegursta lambið. Verðlaunaplatti verður veittur til eignar fyrir sigurvegara þeirrar keppni.

Á staðnum verður happdrætti með fjölda vinninga og SS býður upp á kjötsúpu.

Þau sem vilja koma með vörur til sölu eða fyrirtæki sem vilja kynna starfsemi sína eru velkomin. Áhugasöm eru beðin um að hafa samband við Huldu á netfangið huldauppspuni@gmail.com.

Öll áhugasöm um sauðfé eru hvött til að mæta og eiga góðan dag með sauðfjárbændum í Rangárvallasýslu.

Nefnd Dags sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu